JohannaGunnars

JohannaGunnars

03.03.2008 10:11:15 / johanna_85

Astralia =)

Byrjudum ferdina okkar i Cairns, tar var fyrsta stop a flugstodinni tar sem allt var rifid upp ur toskunum okkar og ramminn okkar var gerdur upptaekur sem vid hofdum keypt i Thailandi, ja hann var vist buinn til ur natturulegum hlutum eins og laufum, greinum, filaskit :) haha..en astralia er mjog strong a hva madur ma koma med i landid :) en ja svo var haldid a Campervan stadinn og fengum vid okkar yndislega bil Britz :) gekk ekkert rosalega vel ad keyra a honum! haha..enda vitlausu meginn!! keyrdi nokkrum sinnum ofuggu meginn og upp a kant er buinn ad vera dugleg ad tvi (julia). En fyrsti parkurinn okkar het Holiday Park mjog fin stadur en djofulli var heit haha..fyrsta daginn var 33 stiga hiti og madur alveg ad farast inn i tessu fina bill okkar! svitinn lak virkilega af manni og tad eina sem vid hofdum til ad kaela okkur var litill vifta a staerd vid lofan a mer hahaha..tannig vid drifum okkur i laugina, tad baeti astandi til muna en svo var bara haldid i naesta supermarkad og keypt almennileg vifta :) Naesta dag var ferdinn okkar plonud med hjalp Angelicu i afgreidslunni (heppni tar sem hun hafdi gert tad sama og vid og vissi alveg hvert aetti ad fara!) vid gistum i 5 naetur i Cairns og forum i 2 ferdir tegar vid vorum tar. Skodudum regnskogana, syntum i laek, smokkudum furdulega avexti, kynntumst 2 donskum stelpum og saum kengurur einnig sigldum vid a fljoti i gegnum regnskoginn i leit ad krokudilum og saum 2 og sidan helling ad ledurblokum og farastjoragaurinn var alltaf ad reyna ad hraeda Johonnu en hun gaf enginn vidbrogd tar sem hun var ekkert ad hlusta a hann :) Seinni ferdinn var Reef Cruise, tar sem vid kofudum, snorkludum og reyndist tetta vera algjor oheppnis dagur fyrir Johonnu tar sem hun datt i stiganum og slasadist a faeti hann bolgnadi allur upp og svo fekk hun lika tennan stora marblett a rassinn :/ en ja starfsfolkid var mjog skemmtilegt og fyndid :) ein starfsmadurinn tok upp a tvi ad kalla mig Bundaberg (eftir astrolsku rommi) tar sem hann rugladi Brandbjerg bolnum minum vid Bundaberg :) skondinn kall, svo i annad skipti sem eg var ad fara kafa og var ad tala vid Dave instructure gaurinn og hann var i alvarlegum samraedum um Island og er ad klaeda sig kofunarbuninginn og eg lit a hann ta er hann allur blar a litinn hahaha.. ta hafdi samstarfsfelagi hans verid ad strida honum og sett matarlit i buninginn!!  (allir ad hrekkja alla tarna) en ja tad var geggjad ad kafa a Great Barrier Reef :) Naest la leid okkar til Mission Beach, ekkert spes stadur nema godar samlokur :) gistum a park sem het Rollingstone hann var mjog fin stadur bara ekkert um ad vera tannig ad naesta dag var haldid til Townsville, tar gistum vid adeins lengur kiktum til Magnetic Island, falleg eyja. Svo heldum vid til Airlie Beach, geggjadur stadur (verdum lengur tar naest ;) ) en ja vid tvaer hofum verid kalladar ymsum nofnum herna i ferdinni: daemi, bladvin, Cladvin, Waldon, johamma Tunnardottir!!! ja tessi astralir eru ekki alveg ad fatta nofnin okkar :) Heldum svo til Maroochydore, tokum litla skodunar ferd tar og endudum svo i rikinu og keyptum okkur bjor :) og gerdum okkur saetar og kiktum a djammid, kiktum a karioki bar og forum svo til Mooloolaba (sem eg helt ad vaeri mooloolabay eda beach) tad getur verid sma erfitt ad skilja astralina :) Turftum svo ad pissa og kiktum a stad tar sem vid turftum ad skrifa nidur heimisfangid okkar haha.. ja tad var mikid hlegid! endudum svo a bara sem het Zink mjog fin stadur en ja astralir eru med eindaemum kurteisir vid barinn og bara alls stadar :) kynntumst nokkrum astrolum og tad var dansad fram a nott og svo var labbad treyttur heim kl 6 um morguninn og maett ollum skokkurunum :) Yfirgafum Maroochydore til ad halda a Noosa Head til ad laera a Brimbretti :) kiktum tar a mannlifid og adeins i budir, keyptum okkur ny bikini og akvadum svo ad enda a strondinni og profa nyju voruna :) annan daginn okkar i Noosa forum vid svo i surf lession sem var geggjad, en va hvad tetta tok a :) kennarinn okkar var med geggjad fyndin franskan hreim en samt buinn ad bua herna i astraliu i 12 ar :) byrjudum i sandinum og madur bjost vid ad geta ekkert haha..en vid stodum eftir 3 tilraunir ta i sjonum ;) en vid fengum ad finna fyrir hardsperrunum naesta dag :) svo var haldid til Brisbane stoppudum a leidinni i Australian Zoo (Steve Irvin gardur). Erum a Gold Coast eins og er a Surfers Paradise erum bunar ad fara i bio a 27 dresses sem var algjor stelpu mynd en fin :) liggja i solbadi og svo kiktum vid a pub crawl a laugard. sem var rosalegt fjor ;) kynntumst fullt af folki ta adallega strakum (veit ekki afhverju) :) en svo kiktum vid i wet'n wild i dag sem var stud, skemmtilegar rennibrautir ;) nema hva i eini brautinni lentir Julia i tvilikri brokun og flasadi ahorfendur tegar nidur var komid!! jaja..tad brotnadi spennan a bikininu minu!! uff..skommustulegt hahaha og tetta var nyja bikiniid (djofulsins drasl!) p.s. johonnu er lika buid ad brotna og tad gerdist to ekki tegar hun var i tvi :) allavega aetla ad lata tetta gott heita hedan fra Astraliu :)

Ykkar solsjuku vinir

Johanna og Julia ;)


» 3 hafa sagt sína skoðun

19.02.2008 02:09:37 / johanna_85

London, Bangkok og Chiang Mai Thailand

Hallo hallo!!

Loksins loksins skrifum vid eitthvad um ferdalag okkar, hofum verid pinu latar vid tad :) en hedan fra Bangkok, Thailandi er allt gott ad fretta. Erum bunar ad skoda mikid og ferdast alla leid upp til Chiang Mai.

Vid byrjudum a tvi ad millilenda i London og turftum vid ad hanga tar i 9 tima uff..bakpokinn var farinn ad siga svolitid i tannig vid akvadum ad geyma toskurnar og taka Tube-id nidur i bae, hofdum vid nu ekkert mikid af hlyjum fotum tannig ad tad var frekar kalt tar sem vid gengum nidur oxford street og kiktum vid i budargluggana og fengum okkur svo ad borda. Svo var haldi aftur upp a flugvoll tarf sem vid lentum i sma veseni i ad tekka okkur inn vid maelum ekki med heathrow flugvelli frekar leidinlegur ekkert nein skylti eda upplysingar hvert eigi ad fara eda hvar flugfelagid manns er, vid byrjudum ad labba allan endan a flugvellinum og ad einhverju tekka inni og heldum ad tetta vaeri okkar sem tad var ekki tannig vid turftum ad labba alla leidina tilbaka og tekka okkur tar inn hahaha... en ja svo hofst gegnum lysingar dotid bidum tar i rod svo tegar komid var ad tvi ad labba i gegnum og var nybuinn ad roa johonnu a tvi ad teir veldu bara folk af handahofi i extra tekk og vid yrdum ekkert valdar en tegar eg var nybuinn ad sleppa ordunum ta var tekid mig fra og eg turfti ad svara spurningum og fara i likams gegnum lysingu tar sem eg stod i klefa i asnalegum posum fyrir bretana :) en eini kosturinn vid tad var ad eg kost framfyrir rodina :D haha... vid flugum med qantas astrolsku flugfelagi i risastori vel a tveimur haedum med 10 saeta rod rosalega fint nema hva vid sattum i midunni 'a milli manns sem nennti ekki ad standa upp fyrir manni tannig madur turfti ad reka rassinn i andlitid a honum til ad komast framhja eda vekja sofandi konuna sem sofnadi strax og vid vorum sest inn i velina (en hun var samt mjog almennileg kona annad en madurinn). svo tok vid 11 tima flug til Bangkok! tegar vid lentum tar vorum faeturnar okkar ordnar risavaxnar og ut bolgnar! hahaha fengum geggjad mikid bjug a tvi ad sitja bara allan timan vorum eins og Hulk. Fundum vid okkur leigubil og heldum ad hann vissi alveg hvert vid vorum ad fara, hann setti okkur ut og vid horfdum i kringum okkur og saum enginn skilti eda hvar gegnid vaeri inn og stodum tarna eins og illa gerdir hlutir og svo akvadum vid ad spurja konu og dottur hennar hvar vid faerum eda hvort ter vissu hvert aetti ad fara og taer voru mjog vinsamlegar og hringdu fyrir okkur og gegnu svo med okkur ad hostelinu :) Thailendingar eru mjog vinsamlegt folk og hjalplegt. Hostelid herna i Bangkok er rosalega fint og folki sem vinnur a tvi mjog hjalpsamt maelum med tvi heitir HI-Sukhumvit. Fyrsta daginn vorum vid frekar treyttar og ekki alveg ad nenni ut i hitan svafum flugtreyttunar ur okkur. Akvadum tennan dag ad skreppa til Chiang Mai og vera tar i 4 daga pontudum a netinu hostel og keyptum okkur lestarmida. Kiktum svo a Weekend market sem var risastor og fullt af folki og allskonar varning allt fra litlum minja gripum upp i hvolpa! svo kiktum vid i Siam Mall tar sem saedyrasafn er og skodudum allskonar litrika fiska :) Daginn eftir var rigning frekar fult en samt heit uti hostelid lanadi okkur regnhlifar og tokum vid sidan Sky-train sem er mjog snidugt og fljotlegt farartaeki, skodudum okkur um og akvadum ad kikja i bio a Beowulf i 3D-imax ta tarf madur ad vera med svona gleraugu :) en tad fyndna var ad i auglysingunum standa allir upp og vid eins og asnar vissum ekkert hvad vid attum ad gera og stodum lika upp og ta var tetta auglysing um konginn og tad tarf vist ad standa upp. frekar serstakt.

Daginn eftir lagum vid i solbadi og chilludum upp a taki a hostelinu, gerdum okkur svo til fyrir syningu sem vid attum pantad a um kvoldid het hun Siam Niramit, mjog skemmtileg syning med thailenskum dansi og litrikum buningum.

Daginn eftir forum vid til Saphan Taksin (gamli baerinn) og tokum bat upp 'ana Chao Phraya til ad skoda Grand Palace og fullt af hofum og truarstodum. mjog ahugavert og mikid af hofum ut um allt herna i Thailandi.

Tekkudum okkur ut daginn eftir og forum ad finna okkur eitthvad ad gera tar til lestinn okkar faeri af stad til Chiang Mai hlokkudum til ad komast adeins ut ur borginni og menguninni. Kiktum a eitt hotelid tar sem haegt er ad fara i sund og notudum daginn til ad sola okkur og kaela. Lestinn var nu ekkert svo spes svolitid skitug og vid svafum i efri koju sem turfti ad setja nidur fyrir okkur af starfsmanni, eg var svo heppinn ad fa svefn felaga hahaha.. ein litinn kakalaka :) oj bara og tar med hofst 12 tima lestarferd upp i sveitir var litid sofid baedi ut af stoppum og havada og svo var madur lika alltaf ad tekka hvort fleiri vinir vaeru ad hrufra sig upp ad manni hahahaha... komum til Chiand Mai treyttar og ekki nogu vel ut sofnar en med tilhlokkun i hjarta hahaha og johanna gat ekki haett af tala um fila :) fengum mann til ad keyra okkur ad hostelinu sem var mjog afskekt og frekar skritid, tad var enginn til ad taka a moti manni vid turftum ad leita ad einhverjum til ad borga og endudum a tvi ad finna trif konuna sem afgreiddi okkur og hringdi i mann og let okkur tala vid hann i simann tar sem hun taladi ekki ensku. vid komum upp i herbergid og aetludum ad henda okkur i ruminn og sofa en tau voru svo grjot hord ad tad var eins og vid vaerum ad sofa a steini hahahaha... voknudum nokkrum klukkutimum seinna um hadegid og gerdum okkur til, aetludum ad tala vid einhvern um ferdir en tegar nidur var komid var stadurinn mannlaus og tad var eins og allir hofdu verid brottnumnir, leitudum ut um allt ad lifi en fundum engan! svo kom ein kall ut ur herberginu sinu og vid krogudum hann af og spurdum hvad hefdi ordid af folkinu? hann gat ekki svarad okkur og nadi i annan mann sem hringdi fyrir okkur i eigandan og tetta var algjort bull hann sagdi bara ad hann vaeri sa eini sem haegt vaeri ad tala vid! tannig vid badum um leigubil i baeinn frekar reidar og fular og svangar haha og settumst inn a tennan fina veitingarstad og fengum okkur mjog godan mat, akvadum ad finna okkur nyjan gististad og fundum tetta fina hotel Diamond Riverside og madurinn tar var mjog hjalpsamur og keyrdi okkur til ad na i farangurinn okkar og tegar vid komum aftur a hostelid ta var enta enginn tarna?? mjog furdulegt! en hann keyrdi okkur tilbaka og vid tekkudum okkur inn og svo pontudum vid ferdir hja honum. Kiktum svo a Night Bazar og a nokkra bari og fengum okkur bjor eftir leidinlegan dag sem endadi svo vel. Allt er gott sem endar vel :D haha er ekki eitthva svoleidis sagt ;)

Svo var haldid i One day treking, leidsogumadurinn het Q eitthva kann ekki ad skrifa tad en nafnid hann tyddi Banani tannig allir kolludu hann tad hahaha...hann var mjog skemmtilegur og alltaf ad grinast eitthva, vorum 9 manns i tessari ferd og mjog skemmtilegt folk, tad var ein breti, hjon fra kanada og frakklandi, 2 astralir og vid :) Vid byrjudum a tvi ad fara a filsbak og tad var mjog gaman en eg vorkenndi filunum ekkert sma! skodudum svo torp og gengum svo ad fossi tar sem vid mattum bada okkur iskalt en samt hressandi :) gegnum svo upp fjall i hitanum alveg ad kafna ur hita haha... svo keyrdu vid i torp sem het Karen og tar sogdu bornin vid okkur Hello, 5 baht! voru ad reyna selja okkur armbond og dot hahaha..svo bordudum vid a litlum stad thailenskan mat sem var bara fin ekkert rosalega spes, klosettin voru oged haha.. svo endudum vid ferdina a bamboo-rafting nidur 'a vorum 4 a flekkanum (3 fartegar og 1 styrimadur) vid attum ad sitja i midjunni og thailenski madurinn styrdi og bretinn sem var med okkur atti ad standa aftan a og styra med nema hva hann datt ut vatnid tvi vid klesstum a bakkann og sat sidan restina af ferdinni tar sem hann hafdi ekkert jafnvaegi og var frekar shockeradur eftir ad hafa hrunnid ofan i vatnid. Sidan lentum vid i tvi tegar vid tokum framur 4 strakum og flekinn teirra var frekar ostodugur ad teir hoppudu allir a okkar fleka og sokktu okkur asnar! hahaha..samt fyndid en vid nadum sidan ad hefna okkar og styrimadurinn okkar sokkti teirra fleka :D jibbii hefnd ;) kvoddum sidan folkid og fengu vid emailid hja frokkunum sem voru i brudkaupsferdinni sinni algjor krutt :) Mjog skemmtilegur dagur nema hvad eg var bitinn og er med risastor bitsar eftir moskitio eda eitthva! ogedslegt hahaha..daginn eftir forum vid i ferd um svaedid og skodudum verksmidur sem framleiddu silki, silfur, gimsteina og skart og regnhlifar og blaevaengi svo bidum vid eftir ad lestinn okkar faeri af stad. fengum mun betri koju og lestinn var adeins hreinni og vid kynntumst amerikonum fra Boston sem vid spjolludum vid og tau sogdu okkur fra sinum ferdum og vid okkar :) svo svafum vid bara nokkud vel tessa lestarferd, komum tilbaka a HI-Sukhumvit hostelid og var tekid a moti manni med bros a vor :) yndislegt folk, naest liggur leid okkar til Astraliu, jibbii okkur farid ad hlakka til ad komast ad sjonum og strondinni ;) en allavega aetla ekki ad hafa tetta lengra fyrsti hlutinn af ferd okkar hefur gengid bara nokkud vel, reyni ad blogga sem fyrst ef eg kemst i tolvu.

Ferdalangarnir Julia og Johanna ;)


» 1 hafa sagt sína skoðun

11.10.2007 19:58:36 / johanna_85

Vááá hvað ég er léleg í þessu

HAHA það er svo langt síðan ég bloggaði síðast að ég mundi varla lykilorðið inn á síðuna hehe :lol: Jæja þá er bara að reyna að finna upp á einhverju sniðugu til að segja frá hmm.... Okey síðan 19 ágúst er ég búin að gera lítið annað en að vinna og djamma. Núna síðasta helgi var mjög skemmtileg, á fös fór ég edrú á djammið með Hörpu, ástu og fleirum. Það var alveg ágætis skemmtun, og ég er búin að komast að því að það er vel hægt að djamma edrú, og ótrúlegur kostur að geta bara keyrt heim. Ég entist alveg til 7 um morgunin, og svo vaknaði ég kl 12 og fór að undirbúa mig fyrir næsta djamm. Því kl 15 átti ég að mæta upp í vinnu í óvissuferð. Þegar við komum þangað fengum við öll fordrykk og grænan pósthús sundlaugapoka með nammi í :) Stelpurnar fengu bláar prinsessu kórónur og strákarnir fengu hvíta pípuhatta. Svo kom rúta að sækja okkur og það var bara tekið kassana af bjór upp í rútu og sötrað stanslaust frá 15 um daginn til 4 um nóttina, þvílíkt þol. Enda rotaðist ég um leið og ég lagðist á koddan kl 4 á meðan ég var að senda sms, og svo vaknaði ég kl 9 í nákvæmlega sömu stellingu og ennþá með símann í hendinni hehe. En já rútan semsagt rúntaði aðeins um Hafnafjörð og það voru miklar pælingar í gangi hvert við værum að fara. Svo stoppar rútan fyrir framan íbúðahús, og við send út. Svo förum við inn og þá er þetta upptöku stúdíó Magga Kjartans. 

 

Hann skipti okkur í stelpur og stráka og við fengum tvo texta, Nína og Geiri og Ástardúettin sungið af stuðmönnum og Grýlunum. Svo byrjaði hann á að senda okkur stelpurnar inn í stúdíó og þar fengum við heyrnatól og svo allt í einu heyrðum við bara í hvor annarri eins og þær væru allar inni í hausnum á mér, mjög fyndið og þá byrjuðu allir að skelli hlæja og þannig byrjaði semsagt Nína og Geir lagið. Svo byrjuðum við að syngja og það kom EKKI vel út hehe, en svo prófuðum við aftur á þá var það mikið skárra. Og á meðan sátu kallarnir inni að hlæja að okkur. En svo var komið að þeim og þeir byrjuðu mjög illa, en enduðu svo eins og einhver karlakór. Svo þegar við heyrðum allt lagið í heild sinni þá byrjuðu þeir karlakórinn, og við stelpurnar hljómuðum bara eins og einhver krakkakór haha. Svo svona örðu hvoru kom inn í lagið svona comment eins og hvar er bjórinn? og einhver var svo huggulegur að ropa í miðju lagi :lol: Svo sungum við saman hitt lagið, það var svakalegt karlarnir sungu og við stelpurnar áttum alltaf að endurtaka síðast orðið í svo háum nótum að mann verkjaði í eyrun HAHA En þetta var svakalegt fjör, og klárlega hápunktur ferðarinnar.

Jæja svo var bara haldið inn í rútu og keyrt af stað með okkur á fóninum, og geisladiskurinn sem hann skrifaði fyrir okkur var gallaður, hann byrjaði á Nína og Geir laginu og allt í lagi, svo þegar hitt lagið byrjaði þá kom fyrst bara undispilið en enginn söngur, svo eftir það kom BARA söngurinn og ekkert undirspil á þá fyrst heyrði maður hvað allir voru hræðilega falskir HAHA. Svo keyrðum við í rúman klukkutíma og enduðum bara rétt hjá bústaðnum mínum í Skorradal. Þar er bær sem heitir Indriðastaðir, og þar er hægt að gera ýmislegt, leigja bústað fara í heita pott og fjórhjól. Þegar við komum þangað var komið kolsvarta myrkur og þar fórum við í tvo leiki, það var skipt í tvö lið, og í fyrri leiknum var jafntefli því flestir voru orðnir svo fullir að þeir vissu ekkert hvað þeir voru að gera hehe, en ég var ekki ein að þeim notabene ;) Svo fórum við í Bocchia í seinni leiknum og þá stóð ég mig eins og hetja og vann fyrir mitt lið ;) En eitthvað var hitt liðið súrt svo að við tókum bráðabana og það endaði í jafntefli. Þannig að í rauninni vann mitt lið :$  En jæja svo var öllum ræflunum orðið svo kalt svo að við fórum inn í hlöðu sem er innréttuð með borðum og stólum og sviði og fleira. Þar sátum við nokkra stund áður en maturinn kom loksins, hann var mjög góður. Sveppasúpa og Lambakjöt.

Meikuðum nú ekki að vera mjög lengi þarna þar sem skemmtinefndin gleymdi að taka tónlist með og í þessari hlöðu voru bara 3 diskar, George Michael, einhvað danskt bull og svo einhver gömul íslensk lög sem maður hafði varla heyrt áður, svo að stemmningin datt aðeins niður, reyndar voru einhverjir sem tóku nokkur dansspor sem er ekkert til að vera stoltur af :D svo við ákváðum bara að drífa okkur í bæinn á Players og klára dæmið. 

 

Svo þegar klukkan var að ganga 4 voru sumir hressari en aðrir, og þá var komin tími á að enda 13 tíma drykkju og halda heim.

Jæja, þá er þetta komið nóg, blogga aftur eftir óákveðin tíma ;)

 

Bæbæ

Fleiri myndir á www.myspace.com/johanna_85

:haha:

 


» 12 hafa sagt sína skoðun

19.08.2007 10:47:27 / johanna_85

Sælt veri fólkið =)

Hæhæ,

Nú sit ég hérna ein í vinnunni að drepast úr hungri og þreytu :( en hvað er þetta, maður reynir bara að hafa gaman af lífinu ;) Ég er ekkert búin að standa mig neitt svaka vel hérna í blogginu, en vonandi lagast það í vetur, það er að segja ef maður gerir e-ð annað en að vinna. En ég get allavega lofað ykkur því að þegar ég fer til Ástralíu þá verður sko bloggað, við stefnum á að fara í lok jan. Vona að ég fái frí í vinnunni :S Þjóðhátíð var alger snilld!!! Hún stóðst undir öllum væntingum og miklu meira en það :D Ég skemmti mér ótrúlega vel allann tíman, nema þarna rétt á mánudagsmorgun þegar smá þynnka var farin að segja til sín. En hún stóðst ekki lengi sem betur fer og var ég laus við hana áður en ég fór í Herjólf thank god :) Við fórum semsagt með Herjólfi kl 12 á fös og vorum á bíl (Econoliner) sem við gistum í, og þvílík snilld sem það var.  Þurftum ekki að tjalda þegar við komum og þurftum ekki að ganga frá þegar við fórum.....bara keyrðum burt :) Ég fékk mér kjötsúpu og ég smakkaði Lunda =) Og það verður sko klárlega farið aftur að ári, nema e-ð svaka komi í veg fyrir það ;) Ég er búin að setja myndir inná myspace-ið mitt ef þið viljið skoða =) Ég er komin með dökkt hár, en þið vitið það nú flest :) Endilega svarið skoðunakönnunni, hvort fer mér betur að vera með ljóst eða dökkt hár =)

Ljóst

eða

dökkt

Það er spurningin???

Jæja ég nenni ekki að skrifa meira :$

Bless bless


» 10 hafa sagt sína skoðun

30.07.2007 09:31:00 / johanna_85

Þjóðhátíð 2007!!!

Jæja nú styttist óðum í Þjóðhátíð og eins og flestir vita þá er ég gjörsamlega að springa af spenningi. Nú þarf maður að fara að leita uppi lopapeysuna, og regnbuxurnar, og koma sér í gírinn =) Það er reyndar langt síðan ég byrjaði að koma mér  í gírinn, síðustu vikurnar er ég búin að vera að hlusta á þjóðhátíðarlög og skoða myndir frá Þjóðhátíðum síðustu ára. Og þar að auki hef ég talað um lítið annað ;) Það verður mæting í Herjólf um hádegi á fös, og svo eigum við ferð heim á mán kl 18. Við keyptum miðann sko í mars eða e-ð til að vera vissar um að fá bestu ferðirnar. :D Lífið er yndislegt...............


» 7 hafa sagt sína skoðun

12.07.2007 00:23:35 / johanna_85

12 júlí!

Jæja ég er orðin 22 ára gömul í dag, eldist og eldist =) læt fylgja hérna nokkrar myndir frá síðustu afmælunum mínum ;)

Við skvísur á 21 árs afmælinu okkar.

Við skvísur í tvítugsafmælinu okkar

og 22 ára í dag

Sjáumst vonandi í kvöld, það er að segja ef þér var boðið í afmælið mitt ;)


» 5 hafa sagt sína skoðun

06.07.2007 23:20:40 / johanna_85

Nei vó! nýtt blogg?

Váááá hvað ég er búin að vera löt að blogga. En ég ætla að reyna að henda einhverju hérna inn, vona samt líka það verði ekki of langt, þó ég efist um það :) En málið er að ég þarf að segja ykkur allt sem ég er búin að vera að gera síðan ég kom heim fyrir um 4 vikum síðan. Okey hvar endaði ég í síðustu færslu.....shit ég á eftir að vera hérna í allt kvöld ef ég á að reyna að muna allt sem ég gerði á þessum 4 vikum :( Okey eftir að ég koma af kentucky þann 6 júní þá fór ég að taka uppúr töskum og svo fór ég í tölvuna og skellti síðustu færslu inn og svo fór ég bara að sofa og .....nei djók!! sleppum öllum detail-um bara. Þið verðið að afsaka ég er með einhvern svefngalsa. Fyrstu vikuna mína var ég bara svakalega dugleg að hjálpa pabba að byggja bústaðinn :) Svo fórum við að djamma um helgina. nenni ekki að segja meira, er með myndir einhversstaðar sem ég á eftir að setja á netið. 17. júní helgina fór ég með stórum hluta kj-klúbbsins til Akureyrar á bíladagana frægu, það var svaka fjör, enda ekki hægt að skemmta sér illa á Akureyri. Þar ætlaði ég að hitta fullt af fólki sem ég gerði ekki og ég eyddi mestum tíma mínum á Akureyri með einhverju fólki sem ég þekkti voða lítið : hehe En semsagt ég og Ásta vorum mættar á Ak um 9 fórum eiginlega bara beint í partý og þurftum meira að segja að gera okkur ready í þessu svokallaða partýi. og í þessu partýi var ógissla sætur lítill hundur sem leit á mig sem besta leikfélaga sinn þar sem allir voru svo busy við að spila póker og ég var sú eina sem sýndi honum einhverja athygli. allt í lagi með það, svo var farið í drykkjuleiki og tekið nokkur zoolanderköst fyrir framan myndavélar....hvað er málið með zoolander, er hann ekki orðin svoldið úreltur, hvernig væri að prófa eitthvað nýtt eins og.....Magnum! klárlega! Okey, svo var bara haldið á sjallann þar sem var svaka DJ að spila, sem ég reyndar tók ekkert sérstaklega eftir því ég á það til að borga hellings pening inná hina og þessa tónlistarviðburði og gleymi svo algjörlega að fylgjast með tónlistinni, verð að bæta úr því. En jæja þar hittum við fólk, svo fórum við (ég) með þessu fólki í partý og já. Svo á laugardeginum var Svaka sólarlandaveður og ég eyddi allavega 3 tímum af þessum laugardegi með bjór í annari og ...bjór í hinni i heitum potti í bikini af konu sem er svona 40 árum eldri en ég og ég man ekki lengur hvað heitir, flott bikini samt...engar ömmubuxur sko ;) Svo var grillað og komið fram við mig eins og drottningu haha elska að segja þetta :) ég gerði ekkert annað en að vera löt í pottinum, og það var bara reddað manni bjór  um leið og hinn var búin og svo var bara skellt hamborgara á grillið og fínheit hehe. Heyrðu vó þetta blogg er strax orðið of langt. En ok svo var náttla bara haldið á djammið og það var svaka fjör og svo vaknað á 17. júní og haldið ofurþunnur í bæinn ;) Svo í vikkunni á eftir gerði ég ekkert merkilegt nema að byrja að vinna. Svo helgina eftir það fór ég á ættarmót ´´á Snæfellsnesi. Það var ágætt að eyða smá tíma með fjölskyldunni, var ekki búin að hitta alla síðan um jólin. Þar var grillað og farið göngutúra og svo horft á miðnætursól"setrið" á jónmessunótt. En jæja svo ég verði ekki hérna í allt kvöld þá ætla ég að reyna að stytta þetta alltsaman svoldið :) Núna síðasta laugardag hélt ég þetta svakalega velheppnaða grillpartý :) Fórum meðal annars í drykkjuspil og svo koma regla um að allir ættu að tala ensku það sem eftir var þangað til einhver myndi drepa þá reglu, og það var geðveikt gaman. Geðveikt fyndið að tala ensku við vini manns sem maður er vanur að tala við á íslensku, hehe svo hringdi pabbi akkurat í þessu enskuæði og ég átti rosa erfitt með að skipta í íslenskuna hehe, var búin að tala ensku í svona hálftíma. en já ég mæli með þessari reglu. Heyrðu já ég held barasta að ég hafi ekki mikið meira að segja, allavega ekkert sem ég nenni að skrifa um núna. Hendi inn nokkrum myndum til skrauts =)

ég og júlía að fríka út á Sjallanum (held ég)

Ha? fullar neiii hva meinaru?? Orðin vel tönuð eftir heitapottinn í sólinni =)

Heiðrún

Júlía og Nína

Og þá er kj-parturinn komin sem skemmtu sér á Ak.

Pottapartý

Ein mygluð að sveskjast í heita pottinum hehe (stelpur segið svo ekki að ég setji ekki ljótar myndir af mér á netið ;) )

Einkatrúbadorinn okkar =)

Svo er það Grillpartýið síðustu helgi...

Tinna, Rut, Ásta og Guðný

Fólk farið að finna á sér

Jæja ég nenni ekki meir.......

Myndir á www.picturetrail.com/johannagunnars

Bless

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

01.07.2007 23:03:39 / johanna_85

Blogg alveg á næstunni

Sorry með þetta bloggleysi, maður er bara svo busy. Þetta fer allt að koma um leið og ég nenni og finn tíma :lol: Og svo er ég líka með fullt að myndum sem ég þarf að henda inná netið. Soon....

» 3 hafa sagt sína skoðun

04.06.2007 13:46:49 / johanna_85

Síðasta vikan

Hæhæ

Jæja síðasta vikan í Svíþjóð var svoldið busy í djammi, ferðalögum og að kveðja fólk. Á föstudaginn í síðustu viku var mér boðið í afmælisteiti hjá Jan, byrjuðum á háskólabarnum en fórum svo öll á stað sem heitir Chez Ami, þar var bara tekið því rólega og spjallað og drukkið bjór. (gleymdi myndavélinni) Á laugardeginum var kíkt á djammið með Þórnýju systir og Noémi. Við fór á Park Lane eins og svo oft áður :) Þar var bara gert það sama og venjulega, dansað af sér skóna, sleppt sér á barnum og spjallað við endalaust mikið að ókunnugu fólki ;) Farið seint heim og svo bara sofið úr sér.

Svo á fimmtudeginum fór ég með skvísurnar tvær í Liseberg, þær Birnu og Ylfu.

og um kvöldið kíkti ég á háskólaball til að kveðja alla

ég, Torben og Jan

Alex og Sabine

Fór reyndar bara snemma heim þar sem ég þurfti að vakna klukkan 6 um morguninn og ná í bílaleigubíl sem við leigðum til að fara til Stokkhólms. Komum til Stokkhólms um 17:00 á föstudeginum, þá ákváðum við að kíkja á konungshöllina sem er á Drottningholm, og ég og Þórný erum 95% vissar um að við höfum séð Prinsinn á röltinu á sloppnum sínum þarna HAHA mjööög ólíklegt, en hvað er þetta það er allt í lagi að láta sig dreyma heh

Flere tabber. I 2004 skal kungen ha kappkjørt med sønnen Carl Philip på veien mellom Karlskoga til Stockholm. Farten skal ha vært nærmere 160 kilometer i timen. Se flere kongelige tabber lengre ned

Kóngurinn og Carl Philip prinsinn...how cute is he???

og hérna býr svo öll fjölskyldan

svo sáum við líka siglandi hús

En allavega, svo komum við beint í kvöldmat til Dóru frænku minnar sem við vorum að heimsækja en hún er líka guðmóðir mín :D og svo eftir nokkur vínglös keyrðum við (eða þórný sem var edrú) í sumarbústaðinn hennar Dóru, eiginlega ekki hægt að kalla það sumarbústað, þetta var svaka einbýlishús á tveimur hæðum, svo voru þau með annað gestahús og svo einhver tvö önnur hús. og þau þau átuu tvo ótrúlega krúttulega pylsuhunda sem heita Siggi og Skott

Stokkhólm er svaka flott borg og er ég búin að ákveða að flytja þangað ef ég flyt einhverntíman aftur til Svíþjóðar. Á lau, fórum við á smá rúnt og svo fótum við í garð sem er svona blanda af dýragarði og árbæjarsafninu eða e-ð álíka. Þar sá ég fullt af sætum dýrum, og meðal annars humangus elg, væri sko ekki til í að mæta einum svoleiðis í skógarferð 8| Þeir eru allt í tveir metrar á hæð.

ég verð eiginlega að skella einni mynd hérna af honum Tímon litla

hann minnti mig svo á hana Snúllu hennar Hörpu ;)

Eins og þið kannski sjáið þá er ég ekkert alveg að nenn að blogga svaka sögur svo að ég hendi bara fullt af myndum inn :lol:

En jæja hvert var ég komin.....á sunnudaginn tókum við bílaferju frá eyjunni sem bústaðurinn var á svo að við þurftum ekki að keyra í gegnum alla Stokkhólm, keyrðum á 120 km/klst eiginlega alla leiðina, sáum fullt af dauðum dýrum í vegaköntunum, meðal annars greifingja og svo komum við til Gautaborgar um miðnætti, lögðum reyndar ekki af stað fyrren um kl 17. Þetta er svipuð vegalengd og frá reykjavík til akureyrar. En já það var geggjað veður alla helgina og alla síðustu dagana mína þannig að það var gert mikið af því að liggja í sólbaði eins og þessi litli

Á mánudeginum var mér boðið í grill til Berglindar og Bjarna, fengum ótrúlega góðan mat og svakalega jarðaberjatertu í eftirrétt sem við áttum öll voða erfitt með að hætta að borða :lol:

Svo á þriðjudaginn fór ég út að borða með mömmu, Þórnýju og Siggu og svo eftirá hittum við nokkra krakka yfir bjór og kom heim um hálf 12, og átti eftir að pakka :S byrjaði á því en var ekki að nenna því og vaknaði klukkan hálf 7 (hálf 5 á íslenskum tíma) og kláraði að pakka. Svo var bara haldið uppá flugvöll, þegar ég flaug frá gautaborg var 28° hiti og glampandi sól og svo lenti ég í Keflavík í grenjandi rigningu og kulda, gerist ekki betra hehe 8)

 

Halldóra frænka var svo sæt að koma að sækja mig og við fórum á kentucky mmm var búin að sakna þess, ekkert svoleiðis í Gautaborg, ef ekki bara allri Svíþjóð 8| Svo að mín er bara mætt á klakann :haha: Djamm á lau, verið í bandi!!

Bæjó

www.picturetrail.com/gautaborg2007

» 7 hafa sagt sína skoðun

20.05.2007 20:31:20 / johanna_85

Hejsan ;)

Jæja, alveg næstum tvær vikur síðan ég bloggaði síðast humm... Byrjum á eurovisionhelginni, þó að Sabine hafi hlegið að mér þegar ég spurði hvort hún vildi ekki horfa á eurovision þá fó það nú svo að hún hélt lítið eurovisionpartý í litla herberginu sínu hehe :lol: Við byrjuðum á að fara að kaupa pizzu og svo fórum við með þær í herbergið hennar og átum yfir eurovision. Svo var alltaf að bætast fleira og fleira fólk við herbergispartýið og á endanum vorum við um 10-13 manns sem sátum öll fyrir framan fartövluna hennar og gláptum á euro ;) Við vorum frá hinum og þessu löndum, svo það var ágætis stemmning og við gátum haldið með mörgum lögum. Svo var haldið á Sticky fingers og freakað út ;)

Svo man ég voða lítið hvað ég gerði alla vikuna, nema á fimmtudaginn átti Þórný afmæli og Ásta og Heiðrún komu að heimsækja mig :D Ég sótti þær á lestarstöðina og þegar við komum heim var bara chillað og spjallað saman í rólegheitum, stelpurnar frekar þreyttar. Svo horfðum við á video eða sumir horfðu og aðrir hrutu í sófanum ;) Um klukkan 10 næsta morgun fórum við á fætur og fengum okkur morgunmat og svo var haldið í Nordstan (verslunarmiðstöðina) og verslað og hlupið á milli búða í hvorki meira né minna en 6 tíma 8| Ásta var með lista yfir hluti sem hún þurfti að kaupa, og var orðin svoldið stressuð þegar 2 tímar voru í lokun, svo að hún hljóp á milli búða og ég og Heiðrún dröttuðumst á eftir, báðar að drepast í bakinu og fótunum hehe :) og notuðum hvert tækifæri til þess að setjast :lol: Svo vorum við komnar heim um 7 og byrjuðum að gera okkur til fyrir kvöldið. Sáum framá að við yrðum bara 4 á djamminu en svo var heppnin með okkur og okkur var boðið í svaka partý, í stórri íbúð sem var troðin af fólki. Svo tókum við smá myndaflipp þar sem við vorum allar að reyna að taka zoolander, en það heppnaðist misjafnlega og á endanum vorum við farnar að hlæja svo mikið og fullt af fólki var farið að glápa á okkur og þá var ennþá erfiðara að taka zoolander :lol: En það tókst á endanum ;)

Svo um miðnætti fórum við stelpurnar á Park Lane og þurftum að bíða í geðveikri röð. Vorum að spjalla við einhverja gaura á meðan og þeir gáfu okkur rós sem við lékum okkur með á meðan við biðum...

 

 og svo þegar við komum inn þá keyptu þeir risastóra fötu sem var full af klökum, vodka, safa, gosi og red bull.

Þá var sko tekið á því, og við sem ætluðum að fara varlega í drykkjuna því planið var að fara í Liseberg (tívólíið) daginn eftir. En við bara varlega smarlega og drukkum og drukkum :$ Enda orðnar ansi skrautlegar á dansgólfinu rétt fyrir lokun. En já svo var bara sofið langt fram á næsta dag, ekkert stress og skunduðum svo í tívólí :P Verð nú bara að segja að ég var mjög stolt af Ástu og Heiðrúnu þær voru mjög hugrakkar og fóru í öll ógeðslegustu tækin. Og þar á meðal nýja tækið sem er svona risastór róla sem þær svo fengu "martraðir" um um nóttina :S

Svo eftir tívólíið fórum við bara a Burger King og svo heim að glápa á tv, og stelpurnar pökkuðu. Svo í dag yfirgáfu þær mig :( Eeeen það er allt í lagi því ég fer til Íslands eftir 2 1/2 viku :haha:

Hlakka geðveikt til að hitta alla!

www.picturetrail.com/gautaborg2007

Ingibjörg til hamingju með 21 árs afmælið þann  14. maí

Þórný til hamingju með 31 árs afmælið

Emilía Ósk til hamingju með 1 árs afmælið þann 18. maí

Tinna til hamingju með stúdentinn ;)

Oki bæ


» 7 hafa sagt sína skoðun

09.05.2007 20:29:33 / johanna_85

Celeb...

 

Halló

Ásdís og Andres

Gaman að segja frá því að þessi gaur kom í blaðinu í dag. Hann er í fótbolta og skorði víst svaklega flott mark um daginn. hehe vildi bara deila þessu með ykkur ;) En já fyrst ég er nú komin hingað og byrjuð á nýrri færslu þá get ég alveg eins sagt ykkur hvað ég er búin að vera að gera. Sem er voða lítið, ég ætlaði nú bara að taka því rólega um helgina síðustu, en svo hringdi Sabine í mig á lau. kvöld og bað mig að koma á djammið. Ég var svona pínu efins þar sem ég var búin að koma mér vel fyrir og ætlaði bara að horfa á sjónvarpið, en svo hugsaði ég bara Why not, ég á nú bara nokkrar helgar eftir hérna í gautaborg, best að skella sér bara, og náði að sannfæra Siggu með mér. Svo að við gerðum okkur ready, og ætluðum að hitta stelpurnar niðri í bæ, en svo þegar við komum niður í bæ þá voru þær ennþá heima að gera sig tilbúnar, svo að ég og sigga ákváðum að hangsa aðeins niðri í bæ. En svo komst ég að því að þær voru ekkert að koma neitt á næstunni svo við ákváðum að fara til þeirra. Svo fórum við allar saman, ég, Sigga, Sabine og Annika í partý til Matheu, þar var engin svaka stemning og svo voru Sabine og Annika orðnar svo þreyttar að þær nenntu ekkert í bæinn. :( Svo að ég og Sigga fórum með einhverju fólki sem við þekkjum voða lítið á Sticky fingers. Svo reyndar týndum við þeim fljótlega, en það var allt í lagi við skemmtum okkur mjög vel á dansgólfinu með fullt af sætum strákum ;) Svo vildi Sigga fara að koma sér heim, en ekki ég hehe eins og flestar mínar vinkonur ættu að kannast við hehe :D En já stuðið var bara rétt að byrja hjá mér, svo að ég enda á því að fara í eftirpartý með Erik og þar var fullt af skrautlegu fólki ;) Og við djömmuðum fram á morgun, og surprise surprise ég hitti íslending, en það var reyndar mjög stutt.

Sigga og ég

Erik

Ég er búin að komast að því að eurovision er ekki eins vinsælt í evrópu eins og ég hélt, Sabine hlóg bara að mér þegar ég spurði hvort hún vissi um e-ð eurovisionpartý, og Noémi hló reyndar ekki að mér en hún sagði mér að það horfir enginn á þetta í Ungverjalandi. En hún var á Íslandi þegar Silvía var kosin í undankeppninni, svo að hún vissi alveg að íslendingar væru svoldið fyrir eurovision. Svo að ég er ekki enn búin að finna eurovisionpartý en við ætlum nú samt að hittast eftirá niðri í bæ. Nú er bara vika þangað til Heiðrún og Ásta koma!!

Jæja ég nenni ekki meir,

Til hamingju með daginn Aggi ;)

Bæjó

Myndir á www.picturetrail.com/gautaborg2007


» 7 hafa sagt sína skoðun

04.05.2007 20:13:49 / johanna_85

26 apr - 4 maí

Jæja það er búið að vera nóg að gera hjá mér síðustu vikuna. Fjörið byrjaði fimmtudaginn 26 apr. Þá fór ég með Finnboga, Ylvu og Birnu útá strönd í góða veðrinu 8) Ströndin er bara rétt hjá þar sem þau búa, þannig að við röltum bara þangað í rólegheitunum. Þegar við komum voru nokkrar konur í sólbaði á bikini og læti, sumar jafnvel berbrjósta, svo að Finnbogi fór svoldið hjá sér greyið hehe enda 11 ára og að byrja á gelgjunni. Við byrjuðum á því að finna okkur góðan stað og settum teppið okkar niður, og krakkarnir slepptu sér aðeins í handahlaupum og breiki, á meðan ég lá bara í rólegheitunum að sóla mig. Svo þegar við vorum á leiðinni heim þá löbbuðum við framhjá tveimur berbrjósta konum og þá heyrist í Birnu "Vá stór brjóst!" við náttla sprungum úr hlátri og ég vonaði innilega að konurnar hefðu ekki skilið hana :lol:

En jæja svo um kvöldið fór ég með Sabinu, John (heitir samt Gulimosgiago e-ð ótrúlega flókið svo að við köllum hann bara john ) ;) Torben og fl. á háskólaball, þar var alveg sleppt sér á dansgólfinu :haha: Geðveikt stuð. Vorum risahópur sem tókum hálft dansgólfið útaf fyrir okkur :D Svo var bara haldið heim snemma, eða um 2 leytið og þá fattaði ég að allir strætóar og sporvagnar voru hættir að ganga og Torben bauðst til þess að fylgja mér heim, sem var alveg slatti langt, ég leyfði honum að fylgja mér aðeins áleiðis, svo sendi ég hann heim og labbaði ein restina :) Þetta var sirka klukkutímalabb, hélt reyndar að það væri miklu lengra.

John og Torben

Svo var ég í fríi á föstudeginum og tók hann bara í leti. Laugardagurinn var hins vegar fullbókaður. Byrjuðum á að vakna snemma eða um 10-11 fór svo í Liseberg, tívólíið í Gautaborg. Við vorum alveg ótrúlega heppnar með veðrið og það var svaka stuð í Liseberg auðvitað :) Alltaf gaman í tívólí :haha: Við fórum í 4 stór tæki. Fyrst fórum við í vatnsrússíbanann, hérna er mynd af okkur í honum..

Svo fórum við í stærsta rússibanann, hann er gerður úr tré og er enganveginn traustvekjandi, en þegar ég sá hann þá bara jájá ekkert mál, svo þegar við vorum komnar svoldið langt í röðina þá fyrst sá ég hræðilega brekku, sem var geðveikt löng og næstum bara freefall, þá fór mín aðeins að fá í magann, og var ekkert smá stressuð í allri röðinni og hvað þá þegar ég var sest í lestina, shit hélt ég myndi deyja 8| En svo auðvitað var þetta bara geðveikt gaman eftirá og ég var geðveikt stolt :D

Svo fórum við í einn annan rússíbana og svo í svona 3D bíó. En jæja svo á leiðinni heim komum ég og sigga við í búð og keyptum okkur einnota grill og steikur og fórum heim, gerðum okkur ready fyrir djammið og grilluðum og drukkum og höfðum það nice. Ein vinkona Siggu kom líka að grilla með okkur Elenor. Svo héldum við í bæinn á stað sem heitir Stiky fingers og er á 4 eða 5 hæðum og á öllum hæðum er mismunandi tónlist svo að allir geti fundið sér e-ð við hæfi. Þar hittum við Sabinu og Noemí og fullt fullt af fólki, og dönsuðum af okkur skóna ;)

Svo var sunnudagurinn bara tekin í chill og sólbað úti á svölum. Mig minnir að ég hafi verið í fríi á mánudaginn, bara man það ekki. Á þriðjudaginn fór ég með Finnboga, Ylvu og Kristínu í Slottskogen (risastór skógur) og þar var lítill dýragarður sem við skoðuðum, og fórum svo á Burger king og höfðum það bara nice. Á miðvikudaginn fór ég með Birnu og Ívar í Slottskogen og sýndi þeim dýragarðinn og fór með þau líka á Burger King hehe. Svo var ég bara í fríi á fimmtudaginn og fór svo að vinna í dag og er komin í helgarfrí jibbý :D Það er nú ekkert planað um helgina, nema bara taka því rólega. Hey já gleymdi að segja að á fimmtudaginn fór ég með mömmu og Þórnýju í bæ sem heitir Kungälv, þar skoðuðum við Kastalavirki og svo vorum við bara í sólbaði allan daginn og átum nesti :)

Í Slottskogen sá ég svartan svan :D Svoldið cool ha?

og ég sá líka mörgæsir

og íkorna

Jæja nú er komið nóg Jóhanna....hættu þessu bulli!

Hey já, mundi allt í einu eftir því að þegar við vorum á leiðinni í Liseberg þá sáum við man sem lá bara líflaus á einhverjum bekk og það var einhver kona að tékka á púlsinum á honum og e-ð geðveikt creepy, svo að lífið er ekki bara dans á rósum :$

Veriði sæl, og ferið vel með ykkur ;)

Fleirri myndir á www.picturetrail.com/gautaborg2007

Blee

Hey! bara tvær vikur þangað til Ásta og Heiðrún skvísur koma að heimsækja mig Jey! Óheppin þið hin ha? hehe

Okey seriously nú er ég hætt...

Elska ykkur öll ;)

 


» 3 hafa sagt sína skoðun

02.05.2007 21:22:34 / johanna_85

26-28 apríl

Hæhæ

Ég nenni ekki að blogga núna en ég ætla að setja inn nokkrar myndir svo þið sjáið hvað ég er búin að vera að bralla, svo lofa ég að blogga betur á morgun eða hinn =D ja eða bara hinn hinn....kannski bara um helgina...

Ströndin

Fimmtudagsdjamm

Liseberg, grill og djamm

 

That's all folks!!


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 21:12:42 / johanna_85

Helgin 20-22 apr.

Hæhæ,

Við fengum tvær íslenskar stelpur í heimsókn yfir helgina sem komu til að fara í inntökupróf í sænska syncro skautaliðið, ég tók þær og Siggu með í partý til Matheau frá Frakklandi á föstudaginn. Þar var okkur boðið uppá einhverja furðulega franska pylsu sem enginn gat klárað hehe :P hún lyktaði svoldið eins og hangikjöt en leit alveg hræðilega illa út, og var sko ekkert eins og hangikjöt á bragðið :S Ég allavega henti henni eitthvert og Matheau spurði mig hvar ég hefði falið hana hehe :lol: En það var allt í lagi, ég setti bara upp saklausu hvolpaaugun og hann varð ekkert sár ;) Það höfðu líka flest allir falið pulsuna einhversstaðar. En jæja, Við drukkum bjórana okkar og stungum svo af í bæinn, á huge stað sem heitir Park Lane.....Rut ætti að kannast við hann. Þar vorum við bara on fire!!! Bæði á dansgólfinu og ég var alveg að meika það á barnum að hösla drykki hehe, held ég hafi bara aldrei grætt svona mikið að drykkjum á einu kvöldi :D Og það furðulega var að ég var bara svona þægilega full allt kvöldið miðað við hvað ég drakk mikið og ég var ekkert þunn daginn eftir :haha: Og ég man eftir öllu ;) En já svo tókum við taxa heim, og ég get svarið það að leigubílsstjórinn var stoned, og við gátum meira að segja lyktað af hassinu eða hvað þetta var sem hann var að reykja, og hann kjaftaði allan tíma og var þvílíkt að rugla í okkur alla leiðina heim, og svo á endanum gaf hann okkur nafnspjaldið sitt svo við gætum sent honum e-mail eða spjallað við hann á skype HAHA og hann kallar sig sugarman. Snilld. Ég ætla að gefa ykkur stelpunum smá sýnishorn á strákana sem við djömmuðum með ;)

Stefano, talar þýsku, ensku og frönsku reiprennandi og ágætis sænsku líka =)

Sést reyndar ekkert geðveikt vel hvað hann er sætur

hérna er önnur

Oscar, frá Svíþjóð

Og svo eru hérna nokkrar af okkur stelpunum

Ásdís, Sunna, Sigga og ég

Og svo verð ég að láta eina fylgja af The stoned taxidriver

Sugarman

Fleiri myndir á www.picturetrail.com/gautaborg07

Svo eru bara tvö háksólapartý í þessari viku :D á fimmtudaginn og svo annað á lau ;)

Stuð

Jæja ég er hætt í bili

Hvernig líst ykkur annars á þessa strákar stelpur??

;)

Adios


» 8 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 17:50:06 / johanna_85

Gleðilegt sumar!!

Æi mér fannst e-ð hálfleiðinlegt að hafa bara myndir í síðustu færslu, svo að núna ætla ég að segja ykkur betur frá síðustu helgi og því sem er framundan. Síðasta helgi byrjaði á svaka partý á föstudagskvöldinu, Við gustavsgellur (búum á gustavgötu) kíktum í bekkjarpartý, sem var haldið í svaka stórri og flottri íbúð sem bara getur ekki verið meira Central, en þessi íbúð er semsagt í sömu byggingu og aðal verslunarmiðstöð Gautaborgar, Nordstan. Þessi íbúð var með hvorki meira né minna en 11 herbergjum en samt bjuggu bara 4 krakkar þarna, sem eru í námi í Chalmers. Þetta byrjaði sem eldhúspartý, og það var orðið ansi troðið svo að við færðum partýið inn í stofuna, þar var bara sleppt sér í dansinum, fólk uppi á sófum og borðum og læti. Þarna var fólk frá ýmsum heimshlutum, aðallega frá Frakklandi, og Svíþjóð og mig grunar að við íslensku stelpurnar höfum verið í meirihluta, þótt ótrúlegt séð, allavega prósentulega séð. Eins og ég segi alltaf, þó Ísland sé lítið þá erum við íslendingarnir útum allt. Hehe geðveikur spekingur ;) En jæja svo vorum við bara 5 sem fórum í bæinn, en við fórum svo fljótlega heim í háttinn. Svo var bara vaknað eldhress á laugardeginu, engin þynnka í gangi og alveg brjálæðislega gott veður miðað við Apríl. Svo að við gustavsgellur klæddum okkur í pils, sandala, bol og sólgleraugu og héldum út í skóg, þar sem er að finna þetta fína vatn með þessari fínu baðströnd og sátum á teppi allan daginn og sleiktum sólina, eða meira svona ísana, létum bara sólina hlýja okkur. 8) Svo á heimleiðinni leigðum við spólur og höfðum það svaka nice um kvöldið. Svo daginn eftir var leikurinn endurtekin, farið út í skóg með teppi og góða bók. Kvöldið tekið í leti :lol: Svo í þessari viku var ég á næturvöktum, en átti þriðjudagskvöldið í frí, svo að ég fór í salsa eins og venjulega, og svo eftirá hitti ég nokkra krakka sem voru með mér í sænsku (þau fóru svo á framhaldsnámskeið) á Respekt og fengið sér nokkra öllara. Kynntist einmitt íslenskum strák sem heitir Gunnar, hann var semsagt með krökkunum í sænsku, hann kemur frá Eyrabakka, alveg eins og Gunnar pabbi minn. :P Þar voru plönuð nokkur djömm, svo það er nóg að gera í djamminu á næstunni :) Og byrjar það annað kvöld, þá er ferðinni haldið í partý. Svo erum við að fá tvær vinkonur Siggu frá íslandi í heimsókn í nótt. Svo að það verður tekið djamm með þeim líka. Svo næstu viku eru tvö háskólapartý, og svo einhverntíman bráðlega verður sænskupartý :haha: Svaka stuð. Vona bara að ég komist á öll þessi djömm, þar sem ég er ekkert svaðalega rík af moníngum núna :( En peningaleysi hefur aldrei stöðvar mig þegar djamm er annars vegar ;) Jæja maturinn er tilbúin mmm Lasagne *slurp*

Hilsen

Jóhanna svanga


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Klukkan
Myspacið mitt
Videoin mín